ÞAR SEM VIÐ VEIÐUM MINNINGAR

Eftirvæntingin leynir sér ekki í augum barnanna þegar ferðin, sem virtist nær endalaus, tekur loks á enda.

Höfn heitir húsið sem hulið er grösugum hól milli sjávar og himinhárra fjalla. Þrátt fyrir sakleysislegt útlit hússins býr þar inni undraverð og göldrótt orka sem umbreytir hversdagslegum hlutum í stórbrotin kraftaverk. Blómin verða að kórónum og skeljarnar geta sagt til nafns. Gamla kamínan deilir dansandi og rauðleitum logum á andlit útitekinna barna sem á gólfinu sitja stóreyg og úrvinda þegar kvölda tekur.

Víðs vegar um húsið liggja vot klæði og rennblautur skófatnaður til þerris. Lækurinn rennur áfram sinn vanagang en öflug ævintýri renna þar líka fyrir börn sem kunna þau að veiða.

Þetta er gömul saga og ný sem lengi hefur fylgt fjölskyldunni að vestan. Í kyrrlátum vestfirskum firði gleymast fjörugar minningar seint. Hlýjan fylgir okkur áfram þótt við þurfum staðinn að kveðja. Staðinn sem gefur okkur svo auðfúslega ævintýri æskunnar.

Scroll to Top