Hjartað missir sinn staðfesta takt þegar augnablikið birtist , oft svo undarsamlega fagurt og ég finn þessa óstjórnlegu þörf hellast yfir mig eins og snjóstormur að vetri.

Hvít ábreiða leggst yfir þorpið og ísilagður veruleiki yfirtekur veröldina að nýja með lituðum viðvörunum.

Lambhúshettur verða að staðalbúnaði og nútímalegir víkingar rölta um og berjast við vindinn.

653821650 2472223403217999 9181202136133563473 n copy

Snjórinn þyrlast upp og byrgir mér sýn þar sem ég arka vel dúðuð yfir túnið með myndavélina.

Í fjarska sé ég hreyfingu og hjartað tekur aukaslag af spenningi.

Það er líkt og kuldinn hverfi með hverju spori sem ég kemst nær því sem ég tel vera hestastóð.

Fegurðin er algjör þarna þar sem þeir standa saman af sér storminn í einum hnapp innan við girðinguna.

Ég vef treflinum betur um höfuðið til þess að verjast ágangi vindsins og smelli af.

Scroll to Top